Flýtilyklar
Fréttasafn
JHM Sport styrktaraðili mótsins
JHM Sport er aðalstyrktaraðili 3. & 4. umferðar íslandsmótsins í Endúró sem fer fram á Akureyri laugardaginn 16. júní. JHM selur torfæruhjól frá TM Racing og GasGas og er auk þess með mörg heimsfræg vörumerki á boðstólnum.
Skráning hafin í Endurókeppni 16.júní
Nú eiga keppendur að geta skráð sig til þátttöku á glænýjum vef MSÍ - http://www.msisport.is
Skráningu líkur miðvikudaginn 13.júní kl. 23:59
Mótanefnd KKA.
Menn í Race-Police á laugardaginn.
Okkur vantar nokkra röska (og helst þroskaða) hjólamenn með okkur í Race-Police á laugardaginn. Þeir sem hafa áhuga á að leggja hönd á plóginn þennan dag og fylgjast um leið með frábærri keppni endilega setji sig í samband við Finn: 897-1490 eða Villa 840-6005.
Mótanefnd.
Enduró keppnin á Akureyri
Vinnukvöld frestast !
Vinnukvöld sem fyrirhugað var í kvöld (11/6) frestast. Ástæðan er sú að jarðýtan er biluð og kemst ekki í lag fyrr en um miðja vikuna. Í staðinn verður vinnukvöld við endúróbraut miðvikudaginn kl. 20:00 og fimmtudaginn kl. 20:00 - látið þetta endilega berast.
Svæðisnefnd.
Baldvin í þjálfaraskóla
Um er að ræða fjarnám í almennum hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ og mun námið hefjast um miðjan júní Um er ræða allt fyrsta stigið, 1a, 1b og 1c, samtals 60 kennslustundir. Námið tekur átta vikur og skila nemendur verkefni til kennara á tveggja vikna fresti, auk lokaverkefnis. Námið samsvarar áfanganum ÍÞF 1024 í framhaldsskólum landsins og fæst því metið til tveggja eininga.Stjórn KKA óskar Baldvini góðs gengis í námi sínu og fagnar því mjög að hann skuli setjast á þennan skólabekk. Félaginu er mikill fengur í menntun sem þessari í slíkum manni sem Baldvin er en hann hefur séð um þjálfun fyrir félagsið.
Félagsskírteinin komin !
Vinnukvöld í Endúróbraut mánudaginn 11. júní kl. 20:00
Íslandsmót KKA í Endúró er á næsta leiti og næstkomandi mánudagskvöld ætlum við að láta hendur standa fram úr ermum við brautarlagningu og merkingar. Við ætlum að hittast kl. 20:00 og nú reynir á félagsandann, allir hvattir til að mæta því margar hendur vinna létt verk - tökum kvöldið frá og hópumst uppeftir. Gullsmiðurinn lofar grilluðum pylsum ef vel gengur og vel verður mætt :)
Svæðisnefnd.
Unglingaæfing í kvöld
Unglingaæfing fyrir 12-16 ára verður í kvöld í MX brautinni kl. 18:30. Stefnt er að þessum æfingum vikulega í sumar þ.e. á þriðjudagskvöldum kl. 18:30
Leiðbeinandi verður Baldvin Þór Gunnarsson.
Ferðasumarið 2007
Nú styttist óðum í að fjallaslóðar og hálendisvegir opnist og eflaust eru það margir sem þegar hafa lagt á ráðin um frábærar ferðir um óbyggðir Íslands í sumar. Til að kinda undir ráðagerðum um alvöru túra þá er upplagt að skoða myndir úr ferð þeirra Torfa, Bjössa og Kalla frá því í fyrrasumar þar sem þeir óku frá Reykjanestá að Skálum á Langanesi á þremur dögum. Alvöru menn - Alvöru túr...