Þú þarft að byrja á að skrá þig í klúbb eins og VÍK, KKA eða einshvern slíkan helst í þinni heimabyggð það er eðlilegast. Svo þarftu að biðja klúbbinn að uppfæra nafnið þitt inn í felix kerfið (þeir skilja það). Þegar það er komið þá ferð þú inn á felix.is og stofnar þig þar og færð sent á maili notendanafn og lykilorð, þá ferð þú inn á msisport.is og loggar þig inn, þar ferð þú inn á "mín síða" og fyllir þar í alla reiti ásamt því að velja þér keppnisnúmer. Síðan þarft þú að bíða eftir að númerið verði staðfest (getur tekið 1-3 daga), eftir það getur þú skrá þið í keppni undir flipanum "mótaskrá" og í framtíðinni þá getur þú skráð þig án allt þessa ferlis, þetta er bara í fyrsta sinn sem þetta er svona langt ferli.