· Kynning á KKA
· Myndir frá starfinu
KKA er akstursíþróttafélag torfæruhjóla- og vélsleðamanna á Akureyri og er innan vébanda ÍBA, MSÍ og ÍSÍ.
Félagið var stofnað 1996 og er aðili að Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og MSÍ, sem er meðlimur í þjóðavélhjólasambandinu FIM (Fédération Internationale de Motocyclisme).
Félagsmenn stunda akstur vélsleða, akstur motocrosshjóla og akstur endurohjóla. Innan félagsins er RC deild, þar sem unnið ermeð fjarstýrð tæki, bíla, flugvélar, þyrlur o.fl.þ.h. Braut hefur verið byggð fyrir aksturbíla á KKA svæðinu ofan við Akureyrarbæ og fyrirhugað er að byggja þyrlupall og flugbraut. Ennfremur er reiðhjóladeild innan félagsins en þegar KKA svæðið stækkar mun verða komið fyrir reiðhjólabrautum fyrir börn, unglinga ogfullorðna.
KKA hefur haldið fjölda móta frá því 1995 m.a. Íslandsmót í ýmsum greinum akstursíþrótta eins og t.d. ímotorcross, endurormótorhjólaakstri, Gokartbílaakstri og vélsleðaakstri.
Markmið KKA er að vinna að útbreiðslu og eflingu þeirra íþróttagreina sem stundaðar eru innan félagsins.
Eitt af frumskilyrðum til að efla íþróttirnar er að skapa meðlimum aðstöðu til að stunda íþrótt sína áákveðnum lokuðum svæðum, viðurkenndum af yfirvöldum, þar sem hægt er að standa fyrir námskeiðum, fræðslu, æfingum ogkeppnum. Vorið 2004 var félaginu úthlutað slíku svæði ofan við Akureyrarbæ og hefur uppbygging svæðisins þegar hafist. Árið 2009 var KKA formlega úthlutað svæðinu sem það fékk til umráða 2004 er deiliskipulag þess var endanlega samþkkt. Í byrjun árs 2009 fékk KKA til umráða Endurosvæði í Torfdalnum sem liggur norðan vegarins upp á skotsvæði. Þetta svæði er í beinu framhaldi af KKA svæðinu enda er i deiliskipulagi gert ráð fyrir að vegurinn upp á skotsvæði sé á svæði KKA og það nái norður að Torfdalslæknum. KKA hefur ennfremur leyfi fyrir ísaksturssvæði við Hvamm í Eyjafirði.
Félagsmenn eiga að gefa utanfélagsmönnum gott fordæmi um umgengni og verndun landsins.
Félagið hefur skapað sér stefnu í umhverfismálum og hefur starfandi ráð fyrir unglinga og barnastarf. Ennfremur hefurfélagið starfandi nefndir er vinna að því að auka og bæta samstarf við landeigendur, yfirvöld og aðra er vilja njóta útivistar oglandsins, eins og t.d. hestamenn. Starf nefndanna hefur borið góðan árangur. Sjá stjórn félagsins og nefndir á heimasíðu félagsinsundir stjórn.
Í KKA fer fram starf fyrir unglinga og hefur það sama forvarnargildi og annað unglingastarf í íþróttafélögum. Með betr iaðstöðu má búast við enn fleiri unglingum í félagið og hefur það mikið að segja.