KKA HANDBÓKIN !

Opnunartímar

Opnunartímar á svæði KKA á Glerárhólum

Svæði KKA í Glerárhólum er opið á neðangreindum tíma:

KKA svæðið opnara 15. apríl ár hvert. Svæðisnefndin getur þó opnað svæðið fyrr ef árferði og nefndin telur það í lagi. Slíkt er auglýst á vefnum.

Svæðið er opið frá kl 07.00-22.00 alla daga vikunar nema þegar um auglýst námskeið og aðrir fyrirfram auglýstir viðburðir sem fara fram í MX braut á vegum KKA.

Púka æfingar eru alla þriðjudaga frá kl: 20.00-22.00 og á sunnudögum 13-15 yfir sumartímann.
Hver púki þarf að vera í fylgd forráðamanns allan tíman sem akstur fer fram.

Almennir æfingatímar þar sem stefnt er að því að vera með leiðbeinanda á staðnum eru á laugardagsmorgnum frá kl: 10.00-12.00 og á fimmtudagskvöldum 20-22.

31. September lokar svæðið.

Svæðið verður opið eftir nánar auglýstum tímum utan þessara opnunartíma fyrir akstur mótorhjóla. Slíkt er þó háð árferði ár hvert þannig að svæðisnefnd mun undir þeim kringumstæðum loka svæðinu ef um miklar umhleypingar er að ræða.

Svæðið er opið fyrir akstur vélsleða yfir vetrartímann þegar snjór er orðinn nægur til aksturs á svæðinu.

Þá gildir sami opnunartími þ.e.a.s. frá kl : 07.00-22.00

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning