KKA HANDBÓKIN !

Gjaldskrá

Aðgangseyrir að svæði KKA að Glerárhólum.

Ágæti mótorhjólamaður nú ert þú kominn inn á svæði sem KKA Aksturíþróttafélag hefur til umráða frá Akureyarbæ.
KKA ber ábyrð á og sér um alla upbyggingu og viðhald á svæðinu ásamt því að halda úti akstursleyfum og tryggingum fyrir æfinga og æfingamót. Einnig er rekið félagsheimili á staðnum þar sem öll félagsstarfssemi fer fram ásamt því að almennir félagsmenn nýta aðstöðuna þegar þeir eru við æfingar á svæðinu. Þar er einnig góð aðstaða fyrir foreldra sem eru að fylgja börnum sínum á æfingar.
Uppbygging og viðhald á svona svæði er mjög viðamikið starf og kostar gríðarlega fjármuni. Þannig að félaginu þykir eðlilegt að setja upp gjaldskrá fyrir notkun á svæðinu eins og tíðkast á flestum öðrum svæðum af þessu tagi.

Þeir sem vilja nota svæðið geta keypt sér árskort eða dagskort.
Árskort gilda þegar brautin er opin en hún getur verið lokuð t.d. vegna þess að námskeið er í brautinni eða hún í útleigu eða hún lokuð vegna árferðis, færis eða verið er að vinna í henni.


Gjald verður eftirfarandi:

Dagskort: Kr. 800.- fyrir félagsmenn 16 ára og eldri
Dagskort: Kr. 1.200.- fyrir utanféagsmenn 16 ára og eldri
Dagskort: Kr. 0.- fyrir félagsmenn 15 ára og yngri
Dagskort: Kr. 500.- fyrir utanfélagsmenn 15 ára og yngri

Árskort: Kr. 8.000.- fyrir félagsmenn 16 ára og eldri
Árskort: Kr. 15.000.- fyrir utanfélagsmenn16 ára og eldri
Árskort: Kr. 0.- fyrir félagsmenn 15 ára og yngri
Árskort: Kr. 8.000.- fyrir utanfélagsmenn 15 ára og yngri


Dagskort verða seld í Bensínstöð N1 Veganesti við Hörgárbraut (hringtorgið) (sími 461 3012) á Akureyri, en árskort verður hægt að kaupa í Studío 6 (hjá Stebba Gull), Skipagötu 6, sími 466 1818, GSM 662 5252. Menn setja sig í samband við Stefán og GREIÐA árgjaldið og þá verður útbúinn passi.

Dagskort og árskort þarf að greiða með peningum.

Svæðisnefnd minnir á að allir sem nota sér svæðið okkar þurfa að kynna sér mjög vel allar umgengnis og öryggisreglur sem í gildi eru á svæðinu.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning