KEA styrkir afreksmann í motocrossi
mánudagur 5.des.11 15:38 - Þorsteinn Hjaltason - Lestrar 30 - Athugasemdir (7)

Í fyrra styrkti KEA KKA og gerir ekki endasleppt í ár því hugsað var til okkar ungu keppnismanna. Á dögunum afhenti KEA styrki til ungra afreksmanna og þar var Einar Sigurðsson með á lista fyrir frábæran árangur í motocrossi en eins og kunnugt er sigraði Einar og sigraði í allt sumar, og endaði með því að sigra allt og alla í motocrossi flokki 85cc. Vann allar keppnir og fékk fullt hús stiga, sem er ótrúlegur árangur. Ekki nóg með það heldur var Einar í 3. sæti til íslandsmeistara í enduro. Ótrúlega góður árangur. Til hamingju Einar.















