KKA HANDBÓKIN !

Fréttir

Finnur Aðalbjörnsson þakkir.

Finnur Aðalbjörnsson er mikilvægur fyrir KKA.    Í gegnum tíðina hefur hann verið ómetanlegur bæði sem félagi og það framlag sem hann hefur veitt bæði með sinni eigin vinnu og hugmyndum,  og með sínum tækjum og tólum sem eru mörg.    Þetta vitum við auðvitað sem erum í stjórn félagsins en við höfum ekki skeytt nægilega um að segja hinum almenna félagsmanni frá þessu.    Þó stjórnin sé öflug þá hefði henni ekki tekist að gera líkt því eins mikið ef ekki hefði notið við Finns og hans tækja í gegnum tíðina.     
Ég vil því taka smá tíma núna til að þakka honum hans verk í gegnum tíðina fyrir félagið sem eru veruleg.     Og vil nefna bara það nýjasta.   Núna í vor gróf hann 75 metra langan 1,2 metra djúpan skurð frá tjörninni við hlið ráslínu og alveg norður fyrir nyrstu beygjuna í brautinni.    Þar var sett niður drainlögn til að koma í veg fyrir bleytu og drullupolla sem myndast á þessu svæði undanfarin ár.    Einnig var gerð stífla og 2-3 metra djúpt lón gert í Torfdalslæknum til að taka vatn í haugsuguna til vökvunar á brautinni.    Ekki nóg með þetta heldur hefur Finnur ákveðið að keyra efni í landið norðan við félagsheimilið þar sem á að koma ný steypt stétt sem mun ná frá veginum sem er við gáminn og alveg vestur fyrir húsið og mun tengjast núverandi steyptri stétt við félagsheimilið.    Þegar þessu er lokið á að laga landið í brekkunni norðan við húsið og annað hvort þökuleggja eða sá í það svæði og einnig er reiknað með að setja tröppur í brekkuna til norðurs.   Svæðisnefndin og húsnefndin hafa samið við Finn um að útvega tæki í þessi verkefni.    Með þessu verður hægt að ganga hringinn í kringum húsið og áhorfendur geta setið og legið í brekkunni norðan við húsið og fylgst með starti o.fl.     Stjórn KKA vill með þessum pistli færa Finn þakkir fyrir hans framlag og kynna það fyrir félagsmönnum. 



Hafðu þakkir fyrir Finnur! :)
priceless, íslensk þýðing (ómetanlegt) takk Bóndadurgur Finnur
Snilld - það er bara einn Finnur! Góð grein líka, stundum þarf bara að segja það sem öllum ætti að vera ljóst.
Fjalar
Það er mjög gott að hafa svona aðila í félaginu okkar held að menn ættu að virða það meira við hann, það er tekið eftir því hvað KKA hefur komið sér upp góðri aðstöðu og það er svona aðilum að þakka.
Það er bara einn Bóndi
Já takk fyrir góð yfirgrip Herr Thorsteinn. Það er bara einn "Bóndi" og það er hann Finur vinur minn.... eða eins og Árni Grant orðaði það svo vel "það eru menn fæddir 66 og svo eru það hinir" Heppnir Norðanmenn að hafa "Bóndann". kveðja +ur Mosfellssveit (rétt norðan Borg óttans) Katoom
Athugasemdir :*

:*

:


:

:


captcha :


Reitir merktir með * þarf að fylla út

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning