Ísland tekur við formennsku í Norðurlandaráðinu
þriðjudagur 4.okt.11 08:59 - Þorsteinn Hjaltason - Lestrar 73 - Athugasemdir (6)

Karl tekur við af Juhani Halme frá Finnlandi
Innan NMC eru öll sérsambönd norðurlandanna, SML Finnlandi, Svemo Svíþjóð,NMF Noregi og DMU Danmörk.
Árlegur norðurlandafundur NMC fór fram laugardaginn 1. október í Helsinki og tók Karl Gunnlaugsson formaður MSÍ þar við formennskunni fyrir hönd MSÍ.
Norðurlandafundur NMC mun verða haldinn í Reykjavík 6. október 2012 og má reikna með um 100 manns á þann fund.
NMC var stofnað árið 2006 eftir áratuga samstarf á milli norðurlandanna í hagsmunamálum fyrir mótorhjóla- og snjósleðaíþróttir.















