KKA HANDBÓKIN !

Hestaleit 16.01.2006

KKA leggur hestamönnum lið:
Hestamenn óskuðu eftir aðstoð KKA við að leita að einum 16 hestum sem strokið höfðu til fjalla.    Þar á meðal var verðlaunahryssa Andreu Þorvaldsdóttur,  sem hún hafði auglýst eftir í blöðum.     KKA fór í leitina á Vaðlaheiði á laugardaginn síðasta.    Bjart verður en all hvasst og skafrenningur á heiðinni.    Ekki er mikill snjór á heiðinni en mest af því var harðfrosið hjarn og svellabunkar þar á milli.    Hestarnir fundust fljótlega enda yfirferðin mikil á hjólamönnum.    Verðlaunahryssan og nokkrir aðrir hestar voru reknir suður eftir heiðinni niður veginn og svo til baka að réttinni við Króksstaði.    Þar var einn hestur beislaður og síðan reknir norður í Geldingsárréttina.      Hinir hestarnir voru reknir ofar í heðinni norður eftir og niður að túnfætinum við Eyrarland þar sem þeir hestamenn sögðust sækja þá síðar.     Reksturinn gekk mjög vel og voru menn í KKA ánægðir að hafa veitt hestamönnum lið með þessum hætti,   enda er samstarf og samvinna KKA og hestamanna gott.
Höfundur: Vefstjóri - Uppfært: 20.03.2007

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning