Flýtilyklar
Framljósið á KTM
KTM árg 2006 og nýrra fæðast ljóslaus þó enduro sé. Til að bæta ljósið má gera neðangreint.
Uppskrift að ljósi á KTM enduro:
1. Fá sér H4 peru. (t.d. í Stillingu, lýsir 80% meira en venjuleg pera)
2. Skoða perustæði.
3. Taka peruhaldarann af speglinum
4. Brjóta aðeins uppá kantana á perunni þá passar hún beint í spegilinn
5. Festa peruna með strappabandi.
6. Fá peruplögg úr fólksbíl, smella gúmíinu uppá peruna og plöggið á peruna.
Með þessum breytingum lýsir hjólið eins og jólatré, einfalt og íslenskt, ekkert HID eða xenon ljósa vesen til tilheyrandi breytingum á rafkerfi og gríðarlegu lausafjárútstreymi. (þetta er það sama en í raun þ.e. hid og xenon, en það er metal halide gas sem gefur ljósið, xenon gasið er bara notað þangað til metal halide gasið fer að virka en það tekur smá tíma svo til að vera ekki í myrkrinu þá er xenon gas notað til að lýsa til að byrja með. Ef argon væri notað eins og á KKA svæðis ljósunum myndi það taka nokkrar mínútur að fá fullt ljós á hjólið).















