Flýtilyklar
Nýjustu fréttir
- fimmtudagur 5.ágú.10 15:14 - Þorsteinn Hjaltason - Lestrar 23 - Athugasemdir (0)Óskað var eftir að vefurinn kæmi því á framfæri að æfing verði í landi Baldvins kl. 20:00 annað kvöld sem sé föstudagskvöldið 6. ágúst 2010. Þetta er fyrir krakka á aldrinum 4-11 ára. Gulli og Helgi Már þjálfarar VÍK verða á staðnum til þess að fylgjast með krökkunum og segja þeim aðeins til. Allar sem mæta fá medalíu að æfingu lokinni.
-
Enduro námskeið
miðvikudagur 4.ágú.10 16:47 - Birkir Sigurðsson - Lestrar 102 - Athugasemdir (0)Enduro námskeið á svæði KKA Lesa meira
-
Motocross brautin
þriðjudagur 3.ágú.10 18:59 - Stefán Þór Jónsson - Lestrar 70 - Athugasemdir (2)Athygli skal vakin á því að motocross brautin verður opin fram á miðjan dag á fimmtudag með kanski nokkrum stuttum lokunum ef það þarf að vökva brautina eða vinna eitthvað í kvikindinu, svo vill ég endilega fá sem mest af fólki á laugardagsmorguninn og aðstoða við vinnu á Íslandsmeistara mótinu í motocross sem byrjar um kl:09:00, það hefur verið erfitt að fá fólk að vinna við mótin hjá okkur en nú skal verða breyting á því, endilega kommentið hér á síðuna eða hafið samband við Stebba gull og meldið ykkur, koma svo og sýnið klúbbnum ykkar smá stuðning, Mótanefnd
-
Púka Enduróferð
þriðjudagur 3.ágú.10 18:43 - Stefán Þór Jónsson - Lestrar 28 - Athugasemdir (0)Jæja þá er að koma að hinni árlegu Púka enduróferð á Draflastaði, fyrirhugað er að fara á mánudaginn 09 ágúst og verður hittingur við Leirunesti kl.18:00, þau börn sem vilja fara með en hafa ekki neinn til að keyra sig geta haft samband við Gunna Hákonar sími 8982099 og við munum reyna að sameina í bíla. ef það eru einhverjar spurnigar þá er einnig hægt að hafa samband, það verður ekið um svæðið við Skuggabjargarskóg og svo verða væntanlega einhverjir leikir og gos og grill verður fyrir alla, bara að drífa sig með í skemmtilega ferð og hafa gaman, það eru nokkrir vanir fararstjórar með í för en gott er að hafa sem flesta foreldra með börnum sínum njóta útiverunnar, svo sjáumst við á mánudagskveldið , Foreldraráð......
-
4. Umferð motocross á Akureyri.
þriðjudagur 3.ágú.10 13:45 - Stefán Þór Jónsson - Lestrar 44 - Athugasemdir (0)Laugardaginn næstkomandi eða þann 07.08.2010 fer fram 4. umferð íslandsmóts í motocross. Keppnin verður haldin á Akureyri.
Skráning fer fram á www.msisport.is Tímatökur hefjast kl: 09:25 en fyrstu moto hefjast kl: 11:25 þegar B-flokkur byrjar. Keppnin endar síðan um kl: 16:00 og verðlaunaafhending eftir það. nánar um dagskrá mótsins er inná www.msisport.is
Búast má við skemmtilegri keppni enda veðurspá góð og brautin verður í toppformi.
KKA hvetur hjólara til að vera með í skemmtilegri keppni.
Valið verður í landslið íslands sem fer á MXON í haust. Það má því búast við látum í þessari keppni.
Mótsstjóri: Stefán Golden. Brautarstjóri: Gunnar H. Öryggisfulltrúi: Guðmundur Hannesson.
-
1. ágúst 2010 Heimboð KKA / K2M
þriðjudagur 27.júl.10 20:10 - Þorsteinn Hjaltason - Lestrar 34 - Athugasemdir (0)Sunnudaginn 1. ágúst kl. 10 árdegis verður ókeypis kennslutími fyrir þá sem hafa áhuga. Kennd verða undirstöðutökin í akstri drullumallaraKennari verður Þorsteinn Hjaltason. Frekar óljóst er hve langan tíma það mun taka Þorstein að fara yfir þessi atriði og gera má ráð fyrir að það fari líka nokkuð eftir fjölda þátttakanda. Allir eru velkomnir.
-
Heimboð KKA.
þriðjudagur 27.júl.10 14:08 - Þorsteinn Hjaltason - Lestrar 68 - Athugasemdir (2)KKA í samvinnu við K2M og Nítró mun standa fyrir svokölluðu heimboði KKA
Frítt í mótocross og endurobraut KKA. Allir að hjóla einsog engin sé morgundagurinn.
sunnudaginn 1. ágúst 2010
* Endurokennsla fyrir byrjendur. hefst kl: 10:00 upp við félagsheimili. Kennari Þorsteinn Hjaltason. Frítt.
* Enduroferð K2M fyrir alla. ca 2-3 tímar. Mæting með hjól á kerru eða bíl upp við félagsheimili KKA kl:13:00
* Torfærukeppni. á sunnudag kl. 18:00 ef stemmari og einhver fjöldi verður?
Þjónusta:
Tvö gasgrill verða uppí húsi. Fólk getur því grillað og notað húsið að vild.
Ef einhver er í vandræðum með geymslu á hjóli yfir nótt meðan á Akureyrardvöl stendur þessa helgi, þá er bara að hafa sambandi við Sigurð hjá Nítró Aku. s: 893-0409
Bakvakt verður í Nítró ef eitthvað vantar. S:893-0409
Nánari uppl: Siggi s: 893-0409, Stebbi Gull s: 662 5252 Birkir: 893 7917
-
Púkaæfing.
sunnudagur 25.júl.10 13:00 - Stefán Þór Jónsson - Lestrar 25 - Athugasemdir (0)Púkaæfing og hittingur verður þriðjudaginn 27. júlí í Samkomugerði. Æfingin byrjar kl 20:00
Grill og stemmari verður sem aldrei fyrr. Foreldrar verða að koma börnum sýnum á staðinn.
Endilega sem flestir að mæta.
Púkadeild KKA,
-
Frétt frá Bílaklúbb Akureyrar.
fimmtudagur 22.júl.10 11:09 - Stefán Þór Jónsson - Lestrar 41 - Athugasemdir (0)Sjallsandspyrnan - SKRÁNING
mánudagur 26.júlí 2010 - Lestrar 19Skráning er nú hafin í fyrstu umferð Íslandsmótsins í sandspyrnu en keppnin fer fram á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar sunnudaginn 1. ágúst. Skráning fer fram í tölvupósti á netfanginu ba@ba.is og það sem koma þarf fram við skráningu er: Nafn ökumanns og kennitala, gerð ökutækis og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb. Skráningu lýkur mánudaginn 26. júlí kl. 23:59.-
Keppnisgjald er krónur 5. þúsund og skal greiðast inn á reikning 565-26-580 kt. 660280-0149. Upplýsingar um reglur Íslandsmótsins í sandspyrnu má finna hér.
F.h. Spyrnudeildar BA
Garðar Garðarsson
gg@ba.is
-
Motocrossnámskeið.
þriðjudagur 13.júl.10 16:36 - Stefán Þór Jónsson - Lestrar 71 - Athugasemdir (1)James Robo stefnir að því að vera með námskeið á sunnudaginn 18. júlí. Stúlkur frá kl: 10-14 og drengir frá 16-20
Brautin er í góðu lagi. Hvar eruð þið? drífa sig. Allir að skrá sig. þeir sem hafa áhuga vinsamlegast mailið á sigurdurb@n1.is
kv. Sig B.
















